Samband | Heimsæktu okkur á Facebook!
 
NL DA DE EN IS
Um Sóley húðsnyrtivörur

Konan að baki Sóley húðsnyrtivörum er Sóley Elíasdóttir, en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækningajurtum, því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna og nokkrir þeirra hafa orðið meðal þekktustu alþýðuhetja á Íslandi. Það kom því engum á óvart að Sóley skyldi taka upp þráðinn frá langalangömmu sinni, Grasaþórunni (Þórunni Gísladóttur) og hefja framleiðslu græðismyrsla eftir aldagamalli uppskrift sem varðveist hafði í fjölskyldu Sóleyjar. Uppistaðan í græðismyrslunum eru kraftmiklar íslenskar jurtir, þar með talið villt handtínt birki og vallhumall sem saman mynda grunninn í allri Sóley húðsnyrtivörulínunni. Smyrslin lögðu grunninn að Sóley Organics fyrirtækinu sem hefur nú verið starfrækt frá árinu 2007.

Hugmyndafræði: Hugmyndafræði Sóley húðsnyrtivaranna má segja að endurspeglist að miklu leyti í orðum langalangömmu hennar Grasaþórunnar: „Guð skapaði okkur á jörðinni og hann skapaði líka öll grösin, sem lækna alla sjúkdóma‟. Sóley leggur allan sinn metnað í að framleiða hreinar húðsnyrtivörur sem innblásnar eru af íslenskri náttúru. Vönduð vinnubrögð, sérfræðiþekking og fræðsla í anda hreinna og aukaefnalausra húðsnyrtivara eru okkar markmið, sem og auðvitað hrein og ómenguð náttúra. Við byggjum á reynslubrunni forfeðra okkar og miðlum þeirri þekkingu til viðskiptavina okkar.

Villt: Við hjá Sóley húðsnyrtivörum erum hreykin af því að hafa náð að fanga magnaðan kraft vandlega valinna og villtra íslenskra, handtíndra jurta í einstakar blöndur sem geyma gæði íslenskrar náttúru sem blandað er saman við bestu fáanlegu hráefni. Í náttúrunni býr áhrifamáttur lækningarinnar að okkar mati.

Kraftmiklar: Talið er að efni í íslenskum lækningajurtum séu virkari en í jurtum sem vaxa á suðlægari slóðum. Þetta stafar af því að íslensk sumur standa stutt yfir og því þurfa jurtirnar að öðlast allan sinn kraft á örskömmum tíma til þess að lifa af veturinn.

Hreinleiki: Sannfæring okkar kemur heim og saman við sannfæringu forfeðranna; Það sem við setjum á húð okkar er fæða fyrir húðina, og næring - okkur á því að vera óhætt að borða allt sem við berum á húð okkar. Á Íslandi eigum við því láni að fagna að eiga nóg af hreinu lofti og vatni sem eru bestu hugsanlegu skilyrði fyrir ræktun lífrænna trjáa og plantna.

Aðalinnihaldsefni / handtíndar íslenskar jurtir: Allar vörur frá Sóley húðsnyrtivörum eru byggðar á kraftmikilli blöndu af t.d. íslensku birki, vallhumli og víði.

Birki / Betula pubescens: Villta íslenska birkið er þekkt lækningajurt og einstakt í sinni röð. Birki inniheldur flavonóiða sem geta haft allt í senn bólgueyðandi, bakteríudrepandi og veirudrepandi áhrif. Birkið er blóðhreinsandi og mikið notað við húðsjúkdómum svo sem exemi og sóríasis. Birki er líka sagt örva húðina og auka teygjanleika hennar.

Vallhumall / Achillea millefolium: Vallhumall hefur stundum verið kallaður hermannajurtin. Hún er ákaflega fjölhæf og vinsæl lækningajurt og indíánar kölluðu hana „læknar allt‟. Vallhumall hefur lengi verið notaður gegn brunasárum og blæðingum. Vallhumall virkar vel gegn ofnæmisútbrotum og er talin ein besta jurtin til að græða þrálát sár. Þá þykir vallhumall hafa sérlega góð áhrif á bláæðakerfið.

Víðir / Salix arctic og Salix callicarpea: Mjög heilandi og kröftug jurt sem inniheldur salicylic sýrur sem eru nýttar í öll helstu verkjalyf í dag. Hann reynist mjög vel gegn höfuðverk, hita, gigt og fleiri óþægindum sem lýsa sér með verkjum og bólgum. Dregur úr þrota og græðir.

Bestu fáanlegu innihaldsefnin: Sóley húðsnyrtivörurnar eru 100% náttúrulegar og umhverfisvænar. Öll okkar uppskera er í einstökum gæðaflokki og um leið gætum við þess að hún innihaldi aðeins virk efni. Sóley húðsnyrtivörurnar eru lausar við tilbúin rotvarnar-, ilm- og litarefni, jarðolíur, parabenefni, paraffin, phthalates, propylene glycol, PABA, petrolatum, sem og önnur kemísk efni sem skaðað gætu manninn og náttúruna.

Umhverfið: Náttúran er arflegð okkar og markmið okkar  er að vernda hana eftir fremsta megni. Það er sjaldnast nóg gert í þessum málum, en því meira sem  við leggjum okkur fram um að virða umhverfið og náttúruna, þeim mun meiri árangri náum við. Margt smátt gerir eitt stórt og við leggjum okkar af mörkum með eitur- og aukaefnalausri framleiðslu.

Einfaldleiki: Vönduð vinnubrögð, sérfræðiþekking og fræðsla í anda hreinna og aukaefnalausra húðsnyrtivara eru okkar markmið, sem og auðvitað hrein og ómenguð náttúra. Við byggjum á reynslubrunni forfeðra okkar og nútímatækni og miðlum þeirri þekkingu til viðskiptavina okkar með vörum sem standast ströngustu gæðakröfur.

Lífrænar burðarolíur: Við notumst eingöngu við lífrænt vottaðar jurtaolíur eins og kókoshnetuolíu, kvöldvorrósarolíu og möndluolíu sem eru án allra óæskilegra aukaefna.

Engar dýraafurðir: Ekkert af innihaldinu kemur frá dýrum eða afurðum þeirra (ef frá er talið býflugnavaxið). Allar húðsnyrtivörurnar henta því þeim sem neyta eingöngu grænmetis.
Vörur okkar geyma eins mikið af lífrænt vottuðu innihaldi og nokkur kostur er. Tilraunir á dýrum eru okkur algjörlega á móti skapi.